Um Ljósablaðið 2022

Ljósmyndari

Myndband: Tjörvi Jónsson

Í myndbandinu hér fyrir ofan stiklar Erna Magnúsdóttir forstöðumaður Ljóssins á stóru yfir efnistök útgáfu Ljósablaðsins í ár. Blaðið kemur alfarið út rafrænt.

Ljósið, 1. tölublað, 16. árgangur, 2022

Útgefandi og ábyrgðaraðili: Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Langholtsvegi 43, 104 Reykjavík. Sími: 561-3770. Netfang: ljosid@ljosid.is.

Styrktarreikningur Ljóssins er: 0130-26-410420, kennitala: 590406-0740.

Ritstjóri: Ragna Gestsdóttir.

Stjórn Ljóssins: Mjöll Jónsdóttir sálfræðingur, Jón Eiríksson lögmaður, Brynjólfur Eyjólfsson viðskiptafræðingur, Ásta Einarsdóttir lögfræðingur, Sara Lind Guðvarðardóttir lögfræðingur og G. Haukur Guðmundsson sjúkraþjálfari. Varamaður í stjórn er Þórður Kristjánsson, ellilífeyrisþegi.

Forstöðumaður Ljóssins: Erna Magnúsdóttir iðjuþjálfi.

Ljósmynd á forsíðu: Chris Lund.

Kynningarmyndband: Tjörvi Jónsson.

Allur réttur áskilinn varðandi efni (texta, myndir, myndbönd og hlaðvörp). Öll notkun efnis, t.d. beinar tilvitnanir og endursagnir, er óheimil án skriflegs leyfis útgefanda.

Um merki Ljóssins

Merki Ljóssins hefur í gegnum árin verið sterk táknmynd endurhæfingarinnar í Ljósinu. Merkið er hannað af Önnu Þóru Árnadóttur.

Form merkisins er þríþætt: Innsti hlutinn er logandi ljós, tákn fyrir lífið sjálft. Hvíti hluti merkisins er mannsmynd sem umfaðmar ljósið. Loks myndar ysti hlutinn skjól utan um ljósið.

Önnu Þóru er umhugað um velferð krabbameinsgreindra og gaf því Ljósinu merkið og fyrsta upplag af bréfsefnum og umslögum. Við þökkum henni innilega fyrir veglega gjöf sem stenst vel tímans tönn.

Árið 2019 fékk merki Ljóssins örlitla andlitslyftingu en sú vinna var í höndum H:N Markaðssamskipta. Einungis voru gerðar breytingar á leturgerð og tón rauða litsins sem er áberandi í öllu markaðsstarfi Ljóssins.